Í Höfðaskógi, austan við vatnið er trjásýnilundur.

Þegar farið er frá ströndinni eftir stígnum við endann á vatninu er snemma komið að nokkuð bröttum malarstíg upp í skóginn.

Við fyrstu gatna­mót til hægri má finna hluta trjásýnilundarins og m.a. Virginíuhegg, lítið til meðalstórt tré eða stórvaxinn runna með skærrautt lauf á haustin.

Neðan við trjásýnilundinn er skóg­urinn þéttur en þar má ganga í suður og þá sést brátt niður að vatninu og ganga má niður á stíginn við vatnið.

Trjásafnið var formlega vígt árið 1996 af Stefáni Pálssyni þáverandi bankastjóra Búnaðarbankans á 50 ára afmæli Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Trjásafnið var í upphafi gjarnan nefnt „trjásýnilundur“. Trjásafnið er í hlíðunum norður og austur af Hvaleyrarvatni. Trjásafnið inniheldur barrviði, lauftré og runna. Trjágróðurinn í safninu er gróðursettur meðfram stígum í skóginum.

Megin tilgangur með trjásafninu er að safna og sýna hvað hægt er að rækta hérlendis af trjágróðri með tiltölulega lítilli umhirðu. Safnið nýtist t.d. til kennslu í trjárækt og grasafræði en reynt hefur verið að safna á sama stað tegundum sem tilheyra sömu ætt til að auðvelda samanburð. Trjásafnið nýtist einnig sem erfðalind og móðurplöntureitur. Hér getur almenningur einnig sótt sér innblástur og upplýsingar t.d. varðandi plöntuval í garðinn eða kringum sumarbústaðinn.

Rúmlega þrjúhundruð mismunandi tegundir/yrki/kvæmi eru nú í trjásafninu hvaðanæva að úr heiminum. Safnið er skráð í rafrænan gagnagrunn og hluti trjágróðurs í safninu er merktur. Trjásafnið er í umsjón Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Trjásafnið er alltaf opið enda hluti af útivistarsvæðinu við Hvaleyrarvatn.