Lionsklúbburinn Ásbjörn í Hafnarfirði lét útbúa reitinn og var verkið fjármagnað af Minningarsjóði Gísla S. Geirssonar, sem var félagi í klúbbnum og lést langt um aldur fram.

Klúbburinn kostaði gerð bílastæðis, lagningu göngustígs upp á Húshöfðann, gerð áningarstaðar á höfðanum, kaup á bekkjum og fleira.

Værðar-bílastæðið er við Kaldárselsveg ögn lengra til suðurs en aðkeyrslan  að gróðrastöðinni Þöll.

Merkið er við tré ofan við bekki.