St. Georgsgildið í Hafnarfirði, félag eldri skáta, var stofnað 22. maí 1963 og nýttu félagar þess umhverfi Hvaleyrarvatn til útivistar og útilegu.

Fljótt kom áhugi á að byggja skála við vatnið og fékk félagið úthlutað lóð og var skálinn Skátalundur vígður 25. júní 1968.

Hófst þá trjá­­rækt á svæðinu sem félagið hafði fengið frá Hafnar­fjarðarbæ en á svæðinu voru engin tré, en víða melar og rofabörð.

Á sunnudagsmorgnum hittast skátar og vinna í skálanum og umhverfinu og fólk er ávallt velkomið að kíkja við.

Skátatúnið er stórt opið svæði með eld­stæði í miðju, þar sem skátar halda útilegur og túnið nýtt til ým­issa nota.

  • Vissir þú að kjörorð skáta er „Ávallt viðbúin/n“?