3 – Birkitré
Áður en Ísland byggðist var birki eina trjátegundin sem gat myndað samfelldan skóg. Íslenskt birki heitir reyndar ilmbjörk enda ilmar hún sérstaklega þegar birkið laufgast á vorin. Oft vex birkið sem runni en villt birkið getur náð allt að 15 m hæð. Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkitegundum er skipt í fimm undirættkvíslir. Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki. Lauf trjánna hafa verið notuð í te og jurtaseiði og er notað sem krydd. Best er það snemmsumars því síðar verður það beiskara. Skoðaðu börkinn og laufblöðin sérstaklega.