Við Óttarsstaðaselsstíg eru nokkrir staðir, sem nýttir hafa verið tímabundið sem skjól fyrir fé og fólk með tilfallandi fyrirhleðslum. Má þar t.d. nefna Bekkjaskúta, Sveinsskúta og Meitlaskjól. Ofar Óttarsstaðasels eru Tóhólaskúti, Sauðabrekkuskjól og Sauðabrekkuhellar. Enn ofar er svo Húshellir.

Hellar eru sérhver holrými sem leynast neðanjarðar. Hellar á Íslandi eru aðallega þrennskonar, íshellar, manngerðir hellar (í móbergi) og hraunhellar, en einnig eru önnur holrými í jörðu oft kallað hellar, t.d. skútar í sjávarbjörgum eða árfarvegum. Hellar voru áður fyrr notaðir sem mannabústaðir, og sjálfsagt verið fyrstu skýli mannsins fyrir veðri og vindum. Seinna með þróun mannkyns urðu hellar aðeins að skjóli fyrir skepnur, og jafnvel innréttaðir sem slíkir.

Hraunhellar eru alls konar rásir í hrauni neðan yfirborðs jarðar. Hraunhellar geta verið af náttúrulegum uppruna eins og hraunrásir, hellar í hraundrýlum og hraunbólum. Þeir geta einnig myndast við svokallaðan troðhól, þá treðst kvika úr eldfjalli undir storknað hraunyfirborðið og lyftir því, þannig að holrými myndast. Móbergshellar og -skútar eru og á Reykjanesskaga, s.s. undir Hellunni við Kleifarvatn, í Grænudyngju og á Sveifluhálsi.

Til þess að teljast hellir er gjarnan við það miðað að holrýmið sé a.m.k. 20 metrar að lengd en annars er talað um skúta eða hraunskúta. Hraunhellar og skútar á Reykjanesskaganum eru u.þ.b. 600 talsins. Einn sögulegasti hellirinn er Fjarðarhellir í Hellisgerði.

Litadýrð í mörgum hraunhellum er vegna útfellinga og efnasambanda sem leka úr veggjunum. Margs konar myndanir finnast í hraunhellum, þar á meðal dropasteinar kleprasteinar, hraunfossar og hraunstrá, stundum líka mannvistarleifar. Mest áberandi eru dropasteinarnir úr hraunbráð. Þeir myndast þegar hraun er hálfstorknað og svokölluð afgangsbráð er á hreyfingu í æðum inni í hrauninu og þrýstist út í holrúm í hrauninu og þar með inn um veggi og loft hellanna. Afgangsbráð sem lekur niður úr hellisloftinu myndar hraunstrá og spena, en á gólfinu hlaða droparnir upp dropasteina.

Sums staðar á Íslandi eru hraunhellar nálægt bæjum enn notaðir sem fjárhús.

Ekki gleyma að taka prentaða kortið með þér!