Meðlimir Skógræktarfélags Hafnarfjarðar hafa verið duglegir að planta trjám, birki, greni og furu, á afmörkuðum svæðum í Undirhlíðum. Einn er þó sá staður í Hlíðunum þar sem birki hefur fengið að vaxa villt um alllangt skeið. Það er birkið ofan við Kerin svonefndu, hraungíga norðaustan Bláfjallavegar. Þar má í dag finna hávöxnustu villtu birkihríslurnar á Reykjanesskaganum.
Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkitegundum er skipt í fimm undirættkvíslir. Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki.
Leave A Comment