Ísold Marín Haraldsdóttir, 19 ára Hafnfirðingur, er Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022 en hún var ein þeirra 139 sem fundu alla 27 ratleiksstaðina sem dreift var vítt og breytt um uppland Hafnarfjarðar. Aldrei fyrr í 26 ára sögur Ratleiksins hafa svona margir klárað allan leikinn.

Ísold Marín Haraldsdóttir, Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar fékk Scarpa gönguskó frá Fjallakofanum.

Leikurinn hófst í byrjun júní og stóð til 26. september. 27 ratleiksmerkjum er komið fyrir, sumum í eða við byggðina í Hafnarfirði en flestum þó í víðfeðmu upplandi bæjarins og  jafnvel út fyrir það. Prentað var vandað loftmyndakort þar sem götur og gönguslóðar eru merktar inn á og staðsetning ratleiksmerkjanna. Þátttakendur hafa svo það verkefni að finna bestu leiðina að merkjunum og stundum þarf nokkrar tilraunir til að finna merkin. Kortin lágu frammi víða í bænum en lang flest kortin voru sótt í Fjarðarkaup.

Sex þúsund sinnum komið að ratleiksstað í sumar!

Hleðslur og hlaðnar götur vestan Hjallabrautar þar sem eitt ratleiksmerkið var. Ljósmynd: Úlla Schjörring.

Þátttakendur er af öllum aldri og þetta er vinsæll fjölskylduleikur. Markmið leiksins er að hvetja fólk til að njóta upplands Hafnarfjarðar en leikurinn er gefinn út af Hönnunarhúsinu í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Árangurinn er svo sannarlega góður því áætla má að um sex þúsund sinnum hafi verið komið á ratleiksstaði í sumar og er það jafnvel vanmetið því svo margir skila ekki inn úrlausnum  þó þeir taki þátt og fjölmargir koma með sem gestir í einstaka leitir að merkjum.

Ratleikskortið 2022. Rauðu stjörnunar sýna hvar ratleiksmerkin voru.

Þátttakendur koma víða að, þó mest úr Hafnarfirði, en sífellt fleiri úr nágrannasveitarfélögunum taka þátt. Þema leiksins í ár var fornar þjóðleiðir, götur og stígar.

Í Breiðdal (Slysadal). Ljósmynd: Úlla Schjörring.

Fjölmargir styrktaraðilar

Í ár er Rio Tinto á Íslandi aðalstyrktaraðili leiksins auk Hafnarfjarðarbæjar sem er samstarfsaðili um útgáfu leiksins. Fjölmörg önnur fyrirtæki styrkja leikinn m.a. með því að gefa vinninga.

Yngsti verðlaunahafinn var Hilmir Kári Jónsson, 10 ára sem var Léttfeti leiksins.

Fjallakofinn gaf aðalvinningana í ár, gönguskó fyrir verðlaunahafa í öllum þremur flokkunum, Þrautakóngur – 27 merki, Göngugarpur – 18 merki og Léttfeti – 9 merki. Að auki fengu tveir í hverjum flokki viðurkenningu, einn í hverjum flokki fékk sundkort frá Sundlaugum Hafnarfjarðar, og hinir fengu Gjafakort frá Fjarðarkaupum, máltíð fyrir tvo á Von og gjafabréf frá Altis.

Ómar Smári Ármannsson á Alfaraleið við Draugdali.

Ómar Smári Ármannsson, sem heldur úti fróðleikssíðunni Ferlir.is, veitti ómetanlega aðstoð við gerð leiksins sem fyrr.

Allir sem mættu á uppskeruhátíðina áttu möguleika á útdráttarverðlaunum.

Þá voru veitt samtals 26 útdráttarverðlaun en þau voru gefin af Sundlaugum Hafnarfjarðar, Altis, Von, Burger-inn, Píluklúbbnum, Ban kúnn, Tilverunni, Rif, Krydd, Músik og sport, Gróðarstöðin Þöll og Gormur.is

125 mættu á uppskeruhátíðina

Alls mættu 125 á uppskeruhátíð Ratleiks Hafnarfjarðar, sem haldin var í Apótekinu í Hafnarborg sl. fimmtudag. Aldrei hafa svo margir mætt áður og var húsnæðið troðfullt og þurftu margir að standa. Þar var farið yfir leikinn, myndir sýndar og verðlaun veitt. Var greinileg ánægja með leikinn og fólk strax farið að hlakka til næsta árs. Hafði fólk orð á því að þrátt fyrir að hafa margoft tekið þátt væri það alltaf að upplifa og sjá eitthvað nýtt í okkar fallega upplandi.

Þroðfullt var í Hafnarborg og ekki fengu allir sæti.

Þetta var 25. ratleikurinn á 26 árum en Guðni Gíslason hafði umsjón með honum og lagði í 15. Sinn.

Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022

  1. Ísold Marín Haraldsdóttir (19), Álfaskeiði 113
  2. Finnbjörn Þorvaldsson (40), Breiðvangi 11
  3. Rúna Björk Júlíusdóttir (45), Breiðvangi 13

Göngugarpur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022

  1. Kolfinna Magnúsdóttir (58), Norðurbakka 25C
  2. Jónína Ágústsdóttir (74), Klukkuholti 2, Álftanesi
  3. Elín Ósk Sigurðardóttir (47), Túnhvammi 15

Léttfeti Ratleiks Hafnarfjarðar 2022

  1. Hilmir Kári Jónsson (10), Vesturvangi 42
  2. Hávarður Örn Hávarðarson (51), Norðurbakka 23
  3. Einar S. Sigurðsson (42), Dvergholti 7

Eftirtaldir fengu útdráttarverðlaun

Fjölmargir fengu útdráttarverðlaun.

  • Aðalheiður Helgadóttir
  • Aldís Sigurðardóttir
  • Andri Fannar Guðmundsson
  • Ásdís Ingólfsdóttir
  • Ásta Eyjólfsdóttir
  • Berglind Hulda Jónsdóttir
  • Einar Ólafsson
  • Elín Henriksen
  • Friðfinnur Gestsson
  • Guðmundur Rúnar Ólafsson
  • Hallgrímur Guðmundsson
  • Helga Björnsdóttir
  • Hreiðar Gíslason
  • Inga Þóra Ásdísardóttir
  • Katrín Líney Jónsdóttir
  • Katrín Líney Jónsdóttir
  • Lilja Sólrún Guðmundsdóttir
  • María Kristbjörg Ásmundsdóttir
  • Nonita Pintor
  • Sigríður Ágústsdóttir
  • Sigríður Karlsdóttir
  • Sigurður Jóhannsson
  • Steinarr Steinarsson
  • Steinunn M. Þórketilsdóttir
  • Þórður Pálsson
  • Örvar Jóhannesson

Einn af Dauðadalahellunum. Helgafell í baksýn.

Fjallgrensvarðan.