30. Ratleikur Hafnarfjarðar hefst brátt, en búið er að leggja leikinn og kortið fór í prentun í morgun.

Vonast er til að það náist að fá kort úr prentun föstudaginn 29. maí.

Þema leiksins í ár er „Hraunin ofan Hafnarfjarðar“.

Það kemur kannski ekki á óvart í framhaldi af birtingu áhættumats vegna mögulegs hraunrennslis.

Það eru gömur og „ný“ hraun í bæjarlandinu og ekki er óalgent að hraun hafi runnið yfir önnur hraun. Nöfnin á hraunum geta verið ruglingsleg, t.d. eru fjölmörg nöfn á Búrfellshrauni, allt eftir því hvar það hefur runnið.

Það er fróðlegt að skoða hvar hraun mætast, sjá hvar gróður í hraunum er mikill eða nær enginn. Hraunin hafa greinilega ekki verið hindrun fyrir bændur fyrr á öldum sem nýttu þau fyrir sauðfé á sumrum. Þó nokkur sel eru í landi Hafnarfjarðar, þar sem fólk dvaldi með fé og hefur reist „hús“ til að dvelja í. Selin sjást jafnvel á loftmyndum vegna þess hversu vel þau eru grasi gróin. Stígar myndust eftir stöðuga umferð að seljunum.

Munið að markmiðið er ekki aðeins að finna merkin, heldur líka að upplifa umhverfið enda sér maður alltaf eitthvað nýtt, sérstaklega ef maður fer ekki alltaf sömu leiðirnar.