Þegar jarðfræðikort ÍSOR af Reykjanesskaga, unnið af margfróðu fólki á löngum tíma, er skoðað er áhugavert að sjá helstu hraunin ofan Hafnarfjarðar, sérstaklega í hinu sögulega samhengi.

Hraununum eru gefin nafngiftirnar kap, gel, búr, se, óbr, skú, tv, stó og hrú. Þetta eru skammstafanir yfir

  • Kapelluhraun, kap
  • Geldingahraun, gel
  • Búrfellshraun, búr
  • Selhraun, se
  • Óbrinnishólahraun, óbr
  • Skúlatúnshraun, skú
  • Tvíbollahraun, tv
  • Stórabollahraun, stó
  • og ekki síst meginhraunið Hrútagjárdyngjuhraun, hrú.

Hellnahraunin, eldra og yngra virðast vera samheiti yfir Stórabolla- og Tvíbollahraunin, sem runnu með u.þ.b. 1000 ára millibili.

Skoða má hraunakort hjá ÍSOR