Hraunin sunnan Brunans (Kapelluhrauns), milli Gerðis og Efri-hellra, eru tiltölulega slétt og vel gróin lyngi og birki, enda mun eldri og mosinn því á góðu undanhaldi. Kapelluhraunið (Bruninn), sem er bæði miklu mun hærra og úfnara, þakið hraungambra, rann árið 1151. Vestan við það eru nokkur hraun, þ.á.m. fimm nefnd Selhraun, öll eldri en 4000 ára. Líklegt má telja að örnefnin hafi fremur orðið til af notkuninni en upprunanum. Nyrst í Hrútargjárdyngjuhrauni eru Óttarsstaðir, Straumur og Þorbjarnarstaðir. Geldingahraun eða Afstaphraunið eldra er eitt selhraunanna og ofar raða Selhraunin sér milli þess og Hrútargjárdyngjuhraunsins, sem er um 7200 ára.
Í Hraununum eru fjölmargar fornleifar, margar enn óskráðar.
Hér í Kúadal, skjólsællri hraunlægð, var hraundalurinn nýttur sem stöðull fyrir kýr frá Straumi, jafnvel þótt staðurinn sé í landi Óttarsstaða.
Leave A Comment