Kapellutóft er rúst af litlu húsi við neðri brún Kapelluhrauns nálægt Straumsvík. Rústin er í landi Þorbjarnarstaða sem er eyðibýli sem stóð ofan við Straum. Tóftin er talin vera af kapellu frá kaþólskri tíð, eftir að hraunið rann á 12. öld.
Örnefnið Kapelluhraun er ekki gamalt og hafði lengi verið bent á upphlaðna grjóthrúgu í því sem kapelluna áður en fyrst var grafið í hana árið 1950. Kapellunni fylgdu sagnir um að við hana væru grafnir einn eða fleiri danskir menn sem hefðu verið drepnir af Íslendingum og setja margar þeirra það í samband við siðbreytinguna á 16. öld. Eldri nöfn á hrauninu eru Nýjahraun og Bruninn að neðanverðu.
Árin 1950 og 1954 var gerður uppgröftur í grjóthrúgunni og kom í ljós að þar hafði verið hús. Eitthvað hafði áður verið verið grafið í tóftina og m.a. mikið tekið úr austurveggnum. Tóftin reyndist vera 2,40 x 2,20 metrar að innanmáli, og veggirnir stóðu upp í 1,80 metra þar sem þeir voru hæstir. Í veggjum og gólfi voru flatar hraunhellur teknar úr næsta nágrenni kapellunnar.
Gamla þjóðleiðin, Alfaraleiðin, millum Hafnarfjarðar og Suðurnesja lá frá Hvaleyri, framhjá kapellunni, enda staðsetning beinlínis valin vegna hennar, og áfram til suðurs að vörðu í hrauninu með stefnu að annarri slíkri á hraunkanti Brunans (Kapelluhrauns) austan Gerðis. Nú er þessi forna leið horfin á milli Leynis norðan Kapelluhrauns og Hrútagjárdyngjuhrauns austan Gerðis, en sést þó enn á litlum kafla í hraunhól þeim er kapellan stendur á.
Leave A Comment