birki

3 – Birkitré

Áður en Ísland byggðist var birki eina trjátegundin sem gat myndað samfelldan skóg. Íslenskt birki heitir reyndar ilmbjörk enda ilmar hún sérstaklega þegar birkið laufgast á vorin. Oft vex birkið sem runni en villt birkið getur náð allt að 15 m hæð. Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkitegundum er skipt í fimm undirættkvíslir. Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki. Lauf trjánna hafa verið notuð í te og jurtaseiði og er notað sem krydd. Best er það snemm­­­sumars því síðar verð­ur það beiskara. Skoðaðu börkinn og laufblöðin sérstaklega.

27 – Birki

Meðlimir Skógræktarfélags Hafnarfjarðar hafa verið duglegir að planta trjám, birki, greni og furu, á afmörkuðum svæðum í Undirhlíðum. Einn er þó sá staður í Hlíðunum þar sem birki hefur fengið að vaxa villt um alllangt skeið. Það er birkið ofan við Kerin svonefndu, hraungíga norðaustan Bláfjallavegar. Þar má í dag finna hávöxnustu villtu birkihríslurnar á Reykjanesskaganum. Birki er ættkvísl jurta af birkiætt sem vaxa víða um norðurhvel jarðar. Birki er skylt elri (ölur) og hesli sem teljast einnig til birkiættar. Birkitegundum er skipt í fimm undirættkvíslir. Birkið er auðþekkt á smágerðu tenntu laufi og ljósum pappírskenndum berki. Ekki gleyma að taka prentaða kortið með þér!

Go to Top