Á Brúsastöðum við Malirnar standa tvö hús, gamli Brúsastaðabærinn nærri sjónum og ofar í landinu stendur nýbýlið Brúsastaðir 2.
Neðan gamla bæjarins ganga hraundrangar í sjó fram, sem sjórinn hefur brotið á síðustu áratugum. Nefnast þeir Stífnishólar og segir sagan að þar hafi verið kveðinn niður draugur um 1800. Ofan þeirra er hlaðinn garður og bátarétt skammt vestar. Brúsastaðir voru eins og hvert annað hafnfirskt grasbýli með smá túnskika í kringum bæjarhúsin, litla matjurtagarða í gjótum og vatnsbrunn í nálægri hrauntjörn. Fólkið sem byggði þessi grasbýli lifði af því sem landið og sjórinn gaf, hafði fáeinar kindur og mjólkandi kú, reri til fiskjar og vann tilfallandi störf til sjós og lands.
Á heimasíðu Brúsastaðaættar er sagt að nafnið tengist fuglum af ætt Brúsa, þ.e. Himbrimum og Lómum. Þessi nafnahugmynd er nýleg en til er eldri og sennilegri skýring á nafninu.
Í eina tíð stóðu margar verbúðir í landi Garðakirkju. Þegar einokunarverslunin lagðist af 1787 fjölgaði lausakaupmönnum og versluðu m.a. á Langeyri. Kaupmennirnir stóðu ekki lengi við en grasbýli tóku að byggjast þar sem kaupbúðir og verbúðir stóðu áður.
Getið er um Litlu-Langeyri í manntali 1801. Þetta kot var í eyði þegar Jón Oddsson kom þangað 1890 og tók Stifnishólar og Brúsastaðavörin að endurbyggja bæinn. Þegar hann var að grafa fyrir grunni hússins fann hann brot úr leirbrúsa og kallaði bæinn þar eftir Brúsastaði. Það má ímynda sér að leirbrúsinn hafi verið frá þeirri tíð er lausakaupmenn versluðu á Langeyri seint á 18. öld, þó skýringin geti verið önnur.
Oddur Jónsson og kona hans Sigríður Guðrún Eiríksdóttir sem komu frá Brynjudal í Hvalfirði tóku við Brúsastöðum af Jóni, en Eyjólfur Kristjánsson Welding og Ingveldur Jónsdóttir fluttu í Brúsastaðabæinn frá Hraunhvammi 1915. Það eru afkomendur þessara hjóna sem tilheyra Brúsastaðaættinni. Sonur þeirra Þórður Kristinn tók við búskapnum árið 1932 og eftir hans dag 1965 bjó Unnur dóttir Þórðar á Brúsastöðum ásamt Birni Kristófer Björnssyni eiginmanni sínum.
Leave A Comment