Norðan Hrútagjárdyngju er Húshellir. Inngangur hans er í vestanverðri fallinnar hraunbólu. Þegar inn er komið blasir við geimur og eru gangar í tvær áttir. Á miðju gólfinu er hlaðið hús, ca. 2×2 metrar í ummál. Bein eru í einum gangnanna, þeim er liggur í suður. Ekki er vitað af hverju beinin kunna að vera. Ekki er heldur vitað hvers vegna húsið var hlaðið í hellinum. Þarna gætu hreindýraveiðimenn hafa haft aðstöðu um tíma, eða einhverjir aðrir, einhverra hluta vegna. Húsið er sennilega hlaðið til að halda hita á þeim er þar gistu svo og forðast vatn er lekur úr loftum eftir rigningar. Botn hússins hefur verið fóðraður með mosa.

Í stórvirkinu „Íslenskir hellar“ segir Björn Hróarsson svo frá Húshelli: „Björn Finnsson og Hörður Þór Sigurðsson fundu Húshelli sumarið 1988. Hellismunninn er um tveir metrar á breidd og eins og hálfs meters hár. Innan við munnann skiptist hellirinn í tvær meginrásir og eina þrengri. Þegar komið er rétt inn fyrir hellismunnann blasir við töluverð hvelfing með sléttu gólfi. Á miðju gólfinu er sérkennilegt byrgi, hlaðið úr hraungrjóti. Hleðslan er falleg og sýnilega gömul.

Steinunum er haganlega hlaðið á þrjá vegu og veit opna hliðin mót munnanum. Moldarjarðvegur hefur sytrað niður um hellisþakið og myndað þunnt lag á gólfi hellisins umhverfis byrgið. Inni í byrginu er einnig mold en þar sem hún virðist vera þykkari en fyrir utan gæti verið skán undir. Steinarnir sem notaðir hafa verið í hleðsluna eru feikna stórir og þyrfti ákveðna og einarða menn til að gera sér það að leik að hlaða byrgið. Margt bendir til þess að hleðslan sé gömul. Fæstir hlaða stórum steinum að gamni sínu og hefur byrgð því líklega þjónað einhverjum tilgangi, til dæmis svefnkró, og gærur og dúkur strengdur yfir til að verjast regni úr hellisþakinu. Nokkuð drýpur úr loftinu og hefur vatnið borið með sér fínan leir eða mold eins og áður var getið. Ofan á veggjum byrgisins hafa hlaðist upp tveggja til fimm sentimetra háar strýtur. Veggirnir eru um 1,5 metrar á hæð. Stafnveggurinn er um 1,2 metrar á lengd en hliðarnar tæpir tveir metrar. Breidd veggjanna er að jafnaði um 40 cm. Neðstu steinarnir og þeir stærstu eru hið minnsta 300 kíló.

Til hliðar við byrgið og litlu innar eru beinaleifar, bæði sauðfjár- og stórgripabein. Beinin liggja á víð og dreif en einnig hefur hnútum verið stungið inn á milli steinanna að innanverðu í byrginu og rennir það stoðum undir þá kenningu að einhver hafi hafst við í hellinum, líklega í skamman tíma þó.

Hleðslan í Húshelli er ráðgáta. Hverjir hlóðu þetta, hvenær og af hverju? Í gömlum sögunum segir af útilegumönnum á Selsvöllum á 18. öld. Útilegumennirnir héldu til við Vellina, nálægt Hvernum eina, en herjuðu á Vatnsleysuströnd, meðal annars stálu þeir frá bóndanum í Flekkuvík. Eftir að þeir höfðu flutt sig „norður með fjöllunum, í helli sem þar er,“ áreittu þeir og rændu ferðalanga. Yfirvaldið safnaði liði, handtók mennina og færði til Bessastaða þar sem dæmt var í máli þeirra. Hvort húshleðslumennirnir eru þarna komnir veit auðvitað enginn. Ef til vill hafa hreindýra- eða rúpnaveiðimenn haft þarna afdrep í veiðiskap sínum en síðustu hreindýrin á þessu svæði voru drepin á fyrstu árum tuttugustu aldar. Þekktir eru nokkrir veiðimenn frá þessum tíma er höfðust við í athvörfum á þessum slóðum.“

Í Húshelli

Á svæðinu eru fleiri hellar og ef gengið er í átt að Hrútagjánni má t.d. finna Neyðarútgöngudyrahelli!