Þegar gengið er eftir Gerðisstíg framhjá Neðri-Hellum, ágætum fjárskjólum með hleðslum fyrir, sést handan þeirra námasvæði þar sem Þorbjarnarstaða-Rauðamelur var áður fyrr. Nú er fátt sem minnir á Rauðamelshólana eins og þetta kennileiti dregur nafn sitt af.
Stígurinn liggur áfram til suðausturs framhjá Rauðamelsréttinni að Vorréttinni, öðru nafni, undir vesturjaðri Kapelluhrauns (Brunans). Í þröngum krika norðan þess stendur þessi fallega hlaðna rétt, hlaðin úr nálægu hraungrjóti.
Réttir sem þessi er dæmigerð “heimarétt” með “almenningi” og tveimur dilkum. Líklegt má telja að “Vorréttin” sé forveri “Þorbjarnarstaðaréttarinnar” við norðanvert túnhliðið að bænum.
Leave A Comment