Ratleikur Hafnarfjarðar 2024 er hafinn

Ratleikur Hafnarfjarðar 2024 er hafinn

Þema Ratleiks Hafnarfjarðar í ár er „þjóðsögur og ævintýri“.

Ómar Smári Ármannsson, fornleifafræðingur, sem heldur úti fróðleiksvefnum ferlir.is, hefur tekið saman skemmtilegt efni um hvern og einn ratleiksstaðinn og það má því segja að í ár sé sagnaleikur í gangi og myrkfælnir eru hvattir til að klára leikinn áður en fera að dimma í haust.

Ratleikskortin eru komin úr prentun og má fá án endurgjalds á eftirtöldum stöðum:

  • Fjarðarkaupum
  • Bókasafni Hafnarfjarðar
  • Ráðhúsinu
  • Bensínstöðvum N1
  • Suðurbæjarlaug
  • Ásvallalaug
  • Sundhöll Hafnarfjarðar
  • og víðar

Þó nokkur merki eru innanbæjar eða örstutt frá byggð og því ættu allir að geta tekið þátt.

Leikurinn stendur til 24. september svo nægur tími er til stefnu og þátttakendur eru hvattir til að gefa sér góðan tíma og skoða vel umhverfið á leiðinni.

Til að skila inn lausnum þarf minnst að vera búið að finna 9 merki en dregið er úr öllum innsendum lausnum og fjöldi vinninga í boði.

  • Léttfeti: 9 merki
  • Göngugarpur: 18 merki
  • Þrautakóngur: 27 merki

Fjölmargir vinningar

Veittir eru þrír vinningar í hverjum flokki og á uppskeruhátíðinni verða veittir fjölmargir útdráttarvinningar en aðeins þeir sem mæta á hátíðina eiga möguleika á þeim vinningum.

Fjölmargir hafa styrkt leikinn með því að gefa vinninga: Fjallakofinn, Sundlaugar Hafnarfjarðar, Elín.is, Von mathús, Altis, Rif, Gróðrarstöðin Þöll, Napoli, American Style, Tilveran, Ban Kúnn, Krydd, Kebab Firði, Snjíís, Gormur.is og Músik og sport.

Í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð

Leikurinn er gefinn út af Hönnunarhúsinu ehf. í samstarfi við heilsubæinn Hafnarfjörð en samstarfið hófst árið 2006.

Markmiðið með leikn­um er að hvetja til útivistar og náttúru­skoðunar í fjöl­breyttu upplandi Hafnarfjarðar og um leið að vekja athygli á þeim fjölmörgu perlum sem leynast í okkar næsta nágrenni.

Guðni Gíslason, eigandi Hönnunarhússins og skáti, leggur leikinn í 17. sinn en leikurinn er að koma út í 27. sinn.

Guðni Gíslason, umsjónarmaður Ratleiks Hafnarfjarðar

Aðalstyrktaraðili

Rio Tinto á Íslandi er aðalstyrktaraðili leiksins í ár en auk þeirra sem gefa vinninga hafa eftirtaldir styrkt leikinn: HS veitur, Landsnet, H-Berg, Altis, Gormur.is, Fjarðarkaup, Gróðrarstöðin Þöll og Coda Terminal.

Samskiptavefur þátttakenda

Þeir sem taka þátt í leiknum er boðið að vera í Facebook hópnum Ratleikur Hafnarfjarðar – Þátttakendur þar sem fólk getur skipst á skoðunum og spurt aðra þátttakendur ráða.

Munið að birta ALDREI myndir af ratleiksmerkjunum svo lausnarorðin sjáist!

Fróðleikur um staðina er á kortinu en viðbótarupplýsingar fyrir hvern stað má finná á vefsíðu leiksins.

Leave A Comment

Go to Top