Jólaratleikur Hafnarfjarðar er nýjasti ratleikurinn í Hafnarfirði og gerður að beiðni Hafnarfjarðarbæjar.

Smelltu á og sæktu

Jólasveinar listamannsins Jean Antoine Posocco hafa prýtt miðbæ Hafnarfjarðar frá 2014. Hann gerði fyrstu skissurnar af jólasveinunum árið 2002 og komu þeir út í bók árið 2005.

Ratleikurinn gengur út á að skanna QR kóða á límmiða sem er á hverjum ljósastaur sem jólasveinarnir eru á. Það leiðir fólk á síðu þar sem er stutt frásögn af viðkomandi sveini og lausnarstafur.

Staurarnir með jólalsveinunum, Jólakettinum og Grýlu og Leppalúða eru 15 og því 15 lausnarstafir sem mynda lausnarorðið.

15. merkið leiðir þátttakendur á síðu þar sem lausnarorðið er ritað inn ásamt upplýsingum um þátttakandann. Dregið verður svo úr réttum lausnum og verðlaun verða veitt á Þorláksmessu þar sem allir þátttakendur fá Prins Polo.

Leikurinn er hannaður af Guðna Gíslasyni hjá Hönnunarhúsinu ehf., útgefanda Fjarðarfrétta, fyrir heilsubæinn Hafnarfjörð.

Hjálparblað má fá á Bókasafninu, Byggðasafninu, Hafnarborg og í gróðurhúsunum á Thorsplani eða sækja hér.