8. Leynir – Hrútagjárdyngja
Leynir eða Leynidalir eru í hraunklofa ofan við Þórðarvík mitt á milli Hvaleyrar og Straums. Ofan við víkina er Hellnahraun en við hana vestanverða er Bruninn. Upp með honum lágu landamerki Hvaleyrar og Þorbjarnarstaða í Hraunum – upp í gegnum Leynidali. Neðanvert í þeim er Hellnahraun, en í þeim ofanverðum er lágbruninn. Línan liggur (lá) upp með Brunahorninu. Alfaraleiðin lá suðvestur eftir Brunanum. Skolphreinsistöð er nú ofan við Þórðarvík. Sjá má vörðu ofan Reykjanesbrautar enn í dag; Háuvörðu. Hún var (er) á fyrrnefndum landamerkjum. Í Leynidali lá Leynisstígur yfir Brunann frá Þorbjarnarstöðum ofan við Gerði. Fé sótti þangað yfir, svo þar voru hlaðin smalaskjól, eitt á klettastandi og annað í hraunsprungu, sem sjá má enn í dag. Líklegra er þó að þetta sé skjól fyrir refaskyttu. Mikil hætta er á að skjólið verði skemmt er byggt verður á lóðinni en þessarar fornminjar er ekki getið í deiliskipulagi fyrir svæðið. Horft upp í smalaskjólið