Nú fer að líða að síðasta skiladegi á úrlausnum úr Ratleik Hafnarfjarðar 2024.

Lokadagurinn er 24. september og má skila í Ráðhúsinu v/ Strandgötu (má setja í bréfalúgu).

Munið að það þarf aðeins að vera búið að finna 9 staði til að geta skilað og átt möguleika á vinningi en að sjálfsögðu keppast allir við að skila inn úrlausnum með sem flestum stöðum.

Klippið úrlausnirnar út af kortinu, klippilínur eru vel merktar. Þetta hjálpar til að vinna úr úrlausnum.

Uppskeruhátíðin verður í aðalsal Hafnarborgar miðvikudaginn 2. október og hefst kl. 18.30.

Reiknað er með að hún standi í um klukkustund.

Eins og venjulega verður farið yfir Ratleikinn, vinningar veittir og gestum gefst kostur á að segja frá reynslu sinni og upplifun. Hafnarfjarðarbær býður upp á heilsusamlega hressingu.

Þrír vinningar verða veittir í hverjum flokki

Frá uppskeruhátíðinni 2023.

Þeir sem ljúka leiknum geta átt von á vinningum en þrír vinningar eru veittir í hverjum flokki.

Allir vinningar eru gefnir af stuðningsaðilum Ratleiks Hafnarfjarðar sem fá kærar þakkir fyrir stuðninginn.

Léttfeti:

  1. 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar
  2. Göngustafir frá Fjallakofanum
  3. Gjafabréf frá Altis

Göngugarpur:

  1. 4 vikna kort í TRX/Robe Yoga hjá Elín.is og Petzl höfuðljós frá Fjallakofanum
  2. 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar
  3. Gjafabréf frá Fjarðarkaupum

Þrautakóngur:

  1. Scarpa gönguskór frá Fjallakofanum
  2. 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar
  3. 3ja rétta máltíð fyrir tvo frá Von mathús

Einnig eru fjölmargir útdráttarvinningar, m.a. frá Sundlaugum Hafnarfjarðar, Gróðrarstöðinni Þöll, Napoli pizzum, Músik og sport, Ban Kúnn, Krydd, American Style, Tilverunni, Kebab Firði, Rif, Altis, Gormi, Snjóís og Fjallakofanum.

Mætum hress og kát í Hafnarborg.

Ratleikur Hafnarfjarðar er gefinn út af Hönnunarhúsinu ehf. í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Aðalstyrktaraðili leiksins er Rio Tinto á Íslandi en aðrir styrktaraðilar eru auk ofangreindra, HS veitur, Landsnet, og Coda Terminal.