Í örnefnalýsingu Gísla Sigurðssonar fyrir Óttarsstaði er m.a. getið um Stóra- og Litla-Rauðamel. Þar segir: „Óttarsstaðir eru í Hraununum svonefndu og tilheyrðu áður Garðahreppi, en land jarðarinnar var lagt undir Hafnarfjörð, þegar álverksmiðjan kom. Skógargatan liggur áfram suður yfir Rauðamel litla og austan við Rauðamel stóra, en Suðurnesjavegurinn lá milli Rauðamelanna. Rauðimelur litli var lágur melhóll. Rauðimelur stóri var sunnar. Hann var feiknastór, og var varða á honum í gamla daga. Vestast á honum var rofabarð með hríslum. Nú eru melar þessir horfnir vegna flugvallargerðar og komin tjörn, þar sem sá syðri var.”

Þrátt fyrir fullyrðingu þess efnis í framangreindri örnefnalýsingu að Litli-Rauðimelur sé horfin „lifir“ hann enn góðu „lífi“ skammt norðnorðaustan þess „Stóra“, sem nú er orðinn að risastóru grjótnámusvæði.

Nú, þegar fyrirhugað er að stækka námusvæðið enn frekar vegna fyrirhugaðrar stækkunar Straumsvíkurhafnar, er full ástæða til að fylgjast vel með framvindu ákvarðana á svæðinu – því reynslan sýnir að verktaka eiga það til að virða takmarkanir leyfa af vettugi þá og þegar þeim hentar. Sem dæmi þá voru þeir búnir að leggja nýjan veg í hrauninu sunnan og vestan gamla námusvæðið skv. ákvörðun byggingafulltrúa án þess að deiliskipulag fyrir það hafði áður verið samþykkt í bæjarstjórn.