Kapelluhraun (syðsti hluti þess var jafnan nefnt Nýjahraun en sá nyrsti Bruninn) er hraun á Reykjanesskaga sunnan Hafnarfjarðar hjá Straumsvík og er hluti af hraunum sem runnu árið 1151-1180 í svonefndum Krýsuvíkureldum.

Kapelluhraun er úfið apalhraun og rann úr gossprungu sem var alls um 25 km löng.

Sunnan á skaganum rann þá einnig Ögmundarhraun í sjó fram. Kapelluhraun rann aðallega frá gígum við Vatnsskarð sem nú heyra sögunni til vegna gjallvinnslu. Í sama gosi rann hraun frá röð minni gíga sem liggur meðfram Undirhlíðum og norður um Gvendarselshæð. Rann það m.a. niður að Kaldárbotnum.