Gullkistugjá er löng sprungurein sem fer m.a. í gegnum suðausturhluta Helgafells og suður um hraunið. Séra Friðrik Friðriksson stofnandi sumarbúða KFUM og K í Kaldárseli gaf sprungureininni nafnið Gullkistugjá. Manngerð brú er þvert yfir miðja gjána. Í þjóðsögum eru sagnir um faldar gullkistur í gjám og sprungum. Jafnan, þegar fólk hefur reynt að ná þeim upp, á þá nálægur bær líkast því að stæði í ljósum logum svo hræðsla greip um sig meðal viðkomandi og hætt var við verkið.

Ásbjörn Özurarson, bróðursonur Ingólfs Arnarsonar, er í Landnámu sagður hafa búið á Skúlastöðum. Hann nam land milli Hraunsholtslækjar og Hvassahrauns og Álftanes allt. Munnmæli munu vera um að Skúlastaðir hafi verið þar sem Skúlatúnshraun sé, norðan við Lönguhlíðarhorn, sbr. umfjöllun í ritinu Garðabær – byggð milli hrauns og hlíða.

Árni Helgason minnist á Skúlastaði og menjar þeirra í Lýsingu Garðaprestakalls 1842 (bls. 211). Hafi Skúlastaðir staðið þar sem munnmæli segja, eru líkur fyrir því að Almenningsskógalandið og Garðaland hafi verið hluti af landnámsjörð Ásbjörns heitins. Ekki er vitað til þess að fornleifarannsókn hafi farið fram í Skúlatúni.

Hins vegar bendir flest til þess að nefndir Skúlastaðir hafi í fornöld verið í Helgadal. Þar eru órannsakaðar húsaminjar.