Skúlatún er óbrinnishólmi í Skúlatúnshraun, aflangur og vel gróinn. Þar telja sumir að byggð hafi verið fyrrum, en það verður að telja ósennilegt.
Þegar gengið er að Skúlatúni frá Bláfjallavegi, þangað er innan um tíu mínútna gangur, má sjá gróinn hrygg í fjarlægð. Þegar nær dregur má sjá þar óbrinnishólmann í Skúlatúnshrauni. Stígur liggur úr suðri að suðurhorni hólsins, en Skúlatún er stór gróin langhæð umlukin helluhrauni. Sléttur stígurinn liggur með austurhlið hólsins og áfram áleiðis að Helgafelli. Annar eldri stígur liggur til norðvesturs frá hólnum. Hann er mjög þúfóttur og ómögulegt að greina hvort þarna hafa verið mannvirki fyrrum eða ekki.
Leave A Comment