Tvíbollahraun og Hellnahraun yngra runnu úr Bollunum í Grindarskörðum um 950 e. Kr. Í hraunum þess norðvestan við Markraka eru t.d. Dauðadalahellar, fallegar og margflóknar hraunrásir. Þarna gætu hafa runnið fyrstu hraunin á Íslandi eftir að búseta landnámsfólks hófst í landinu og hellar þess þá þeir fyrstu hellar sem mynduðust hér á landi á sögulegum tíma.

Í hraununum eru allmargir hellar, auk Dauðadalahellanna, s.s. Elgurinn undir Tvíbollum, Spenastofuhellir og Rósaloftshellir.

Eins og áður er getið varð eldgosið um það leyti er fyrstu landnámsmennirnir voru að setjast að hér á landi. „Meginhraunflóðið rann til norðurs og norðvesturs, hraunelfan klofnaði um hæðina, Melkrakan, austan við Dauðadali. Mjó álma úr því rann síðan milli hennar og Lönguhlíðar og breiddist nokkuð út þar vestur af, en meginhraunflóðið féll norður af Helgafelli og norður með því að suðvestan. Tvíbollahraun er allt að 18 ferkílómetrar að flatarmáli.

Dauðadalahellarnir eru í Stórabollahrauni, Þeir eru nokkrir, þ.á.m. Flóki. Leiðarendi, einn mest sótti ferðamannahellir á landinu, er einnig í Stórabollahrauni. Yfir honum vomir Tvíbollahraunið. Á einum stað hefur það náð að þröngva sér takmarkað inn í hellinn.

Upptök Tvíbollahrauns eru í framangreindum Tví-Bollum eða öðru nafni Mið-Bollum. Tví-Bollarnir eru tveir samliggjandi gígar í brúnum Grindarskarða, í um 480 m hæð yfir sjó. Hraunið hefur fossað niður bratta hlíðina niður á láglendið en einnig runnið í lokuðum rásum. Hraunið flæmdist síðan til norðurs milli móbergshnúka og klapparholta allt niður undir Hvaleyrarholt við Hafnarfjörð. Fyrir áhugasama er áhugavert að rölta upp Hlíðargötuna um Kerlingaskarð, millum Tvíbolla og Kerlingarhnúka eða bara ganga upp eftir gömlu Selvogsgötunni um Kristjánsdali og upp með austanverðu Konungsfelli.