Stórabollahraun er talið vera um 2200 ára. Hraunið ber keim af dyngjugosi. Gígurinn, mjög stór, er utan í vestanverðu Kóngsfelli (Konungsfelli) í norðanverðum Grindaskörðum ofan Hafnarfjarðar. Hraunið er nú að mestu undir Tvíbollahrauni, komið úr yngri gígum skammt sunnar í Skörðunum.
Stóribolli, upptök hraunsins, er stór og mikill gígur norðvestan í fellinu. Hraunrennslið var hvílíkt að það náði með rennsli sýnu, væntanlega ómeðvitað, að stífla dalalægðir er síðar mynduðu Hvaleyrarvatn og Ástjörn.
Frá börnum Stórabolla er ágætt útsýni yfir undirlendið, allt til Hafnarfjarðar.
Leave A Comment