Kaldárhraun er eitt síðasta dæmið um heillegt og óraskað helluhraun í landi Hafnarfjarðar og er fræðslu- og útivistargildi svæðisins metið hátt. Á svæðinu eru fornminjar sem tengjast selbúskap, m.a. gömul gata, Kaldárstígur.

Kaldárhraun og Gjárnar í Hafnarfirði voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2009. Markmið með friðlýsingu Kaldárhrauns og Gjánna er að vernda helluhraunsmyndun og fagrar klettamyndanir í vestari hrauntröð Lambgjár upprunninni frá hinni kunnu eldstöð Búrfelli.

Í hrauninu og Gjárnar, þ.e. Norðurgjá, Suðurgjá og Lambagjá, sem náttúruvætti. Kaldárhraun er ekki síst sérstakt fyrir þann mikla hæðarmismun á austurhluta þess annars vegar og vesturhlutanum hins vegar. Stafar það af misgengi, sem gengur í gegnum hraunið vestan Lambagjár og nær allt frá sunnanverður Borgarstandi til norðurs um Smyrlabúð og Hjallana í Heiðmörk.

Í Gjánum, sem var fyrrum hrauntjörn, er hár stakur bergstandur, nefndur Álfakirkja.