Bláberjahryggur er misgengisprunga sem liggur um Bleiksteinsháls milli Kaldárselsvegar (Vatnshlíðar) og Hamraness. Norðvestur barmurinn er hærri og misgengið er mest um 3-4 metrar. Jarðskorpan hefur rifnað í sundur áður en Búrfellshraun rann og sést misgengið greinilega norðaustan Gráhelluhrauns þar sem það markar skilin milli Flóðahjalla og Setbergshlíðar.

Nú er Ásfjallsbyggðin austanverð að byggjast upp og því verður stutt þaðan að gróningunum og skjólinu suðaustan hryggjarins.

Áður fyrr var hæðarsvæðið millum Vatnshlíðar og Ásfjalls nánast melgróningar þar sem Bláberjahryggurinn var nánast eini grasgróningurinn, en eftir að byrjað var að sá þar lúpínu virðist þar vera að verða torsótt gróðurmyndun.