Búrfellshraun er samnefni yfir hraunasvæði sem teygir sig yfir stórt svæði í og ofan Hafnarfjarðar. Hraunin, fjórar lænur, runnu fyrir um 8000 árum en þá varð eldgos sem myndaði eldborgina Búrfell sem rís fyrir sunnan Hafnarfjörð. Hraunin nefnast ólíkum nöfnum eftir staðsetningu þeirra eða útliti, t.d. Smyrlabúðarhraun, Gráhelluhraun, Urriðakotshraun, Lækjarbotnahraun, Svínahraun, Urriðakotshraun, Stekkjarhraun, Hafnarfjarðarhraun, Garðahraun, Gálgahraun og Balahraun.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hefur plantað myndarlegum skógi í Gráhelluhrauni og er hann aðgengilegur bæði gangandi, hjólandi og ríðandi. Í hrauninu eru t.d. Gráhellufjárskjólið sem og nokkrir minnisvarðar um frumkvöðla Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Leave A Comment