Í Landamerkjaskrá frá 1890 segir: „Urriðakot á hálfa Fjárhellra mót Vífilsstöðum sem fyrrum hjetu Maríuhellrar framm í vörðuna sín megin á Norðurhellragjáarbarmi, og í stóra steininn á fremsta Tjarnholtinu með grasþúfu uppá, þaðan heimleiðis í vörðuna á miðri Þverhlíðinni þaðan í vörðuna á Flóðahjallatánni úr henni í Álp[t]artanga, þaðan í hellu sem er í miðjum hrauntanganum, kölluð Sýlingarhella úr henni í uppmjóan háan Klett með Klofavörðu uppá sín megin [við] Stóra Krók og í gamlar Fjárrjettargrjótgirðingar í moldarhrauni, og upp í áðurnefnda Urriðakots Fjárhellra.“
Urriðakot er innan hinna fornu merkja á landi Garðakirkju á Álftanesi. Í landi jarðarinnar eru fjölmargar minjar, einkum tengdar fjárhaldi. Má í því sambandi t.d. nefna Urriðakotsfjárhella, Urriðakotsfjárhúss í Urriðakotshrauni, Sauðaskjóls, Urriðakotsrétta yngri og eldri og Urriðakotsfjárhúss syðra, sem var þeirra syðst. Syðra Urriðakotsfjárhúsið hefur lengst af verið talið minnst virt af öðrum framangreindum. Hraunið, sem nefnt hefur verið frá Búrfelli, nefnist Urriðakotshraun, jafnvel Urriðahraun og Urriðavatnshraun.
Leave A Comment