Fjárborgir eru víða að finna á Reykjanesskaganum og víðar og vitna um gott verklag og hyggjuvit fyrrum forfeðra og -mæðra er hlóðu þær á sínum tíma.

Flestar borgirnar eru kenndar við bæi sem þær tilheyrðu en ein fjárborg er þó kennd við konu og nefnd Kristrúnarfjárborg. Þessi fjárborg stendur á nokkuð sléttum hraunhrygg skammt vestan við Smalaskálahæð í Hraunum sunnan við Straumsvík. Fjárborgin er allt eins nefnd Óttarsstaðafjárborg, en Kristrúnarborg er það nafn sem staðkunnugir notast jafnan við. Konan sem fjárborgin er nefnd eftir hét Kristrún og var Sveinsdóttir en hún kom upphaflega sem vinnukona að Óttarsstöðum frá Miðfelli í Þingvallasveit og varð húsmóðir á bænum. Gísli Sigurðsson lögregluþjónn í Hafnarfirði og örnefnasafnari sagði frá því í örnefnaskrá sinni að Kristrún hefði hlaðið borgina ásamt vinnumanni sínum.

Í Smalaskálahæð er Smalaskálaker, rauðamalarhóll eða fyrrum rauðamelur í jarðfalli Hrútagjárdyngjuhrauns.

Árið 1974 var komið fyrir þar „listaverki„. Rauðamalarhóllinn er merkilegt jarðfræðifyrirbrigði frá því áður en Hrútargjárdyngjuhraunið rann. „Húsbyggingin“ (Das Haus Projekt) er þekkt verk eftir Hrein Friðfinnsson. „Húsbyggingin“ byggir á sannri sögu eftir Þórberg Þórðarson, Íslenskum aðli, um sérvitring sem afræður að byggja hús þar sem innihliðin snýr út.

Myndlistarmaðurinn tilheyrði SÚM hópnum þegar hann gerði listaverkið. Þetta var lítið hús sem var forsmíðað og síðan flutt í einingum. Eftir að búið var að mynda húsið lét Hreinn það afskiptalaust, enda tilgangur hans aðeins að koma því á þennan stað og útbúa myndröð í anda SÚM-aranna. Gjörningnum var lokið og síðan beið hússins að ummyndast með veðrinu sem lék um það og setti mark sitt á náttúruna allt í kring.

Húsið stóð af sér flest veður um árabil. Skotglaðir Hafnfirðingar notuðu húsið til að æfa hæfni sína, eins og þeir virðast hafa gert svo óralengi á þessum slóðum. Smám saman drukku spónaplöturnar sem mynduðu útveggina í sig regnvatnið og grotnuðu niður, en bárujárnið hélt húsinu uppi. Stoðirnar blöstu við og innan þeirra var bárujárnið heilt og óryðgað enda vel galvaniserað.

Stuttu eftir 2000 sprakk húsið í vindhviðu einn veturinn og dreifðust stoðir og  járnplötur vítt og breitt um jarðfallið. Laugardaginn 17. júlí 2010 voru einhverjir á ferð í Smalaskálakeri og kveiktu í því sem eftir var af Slunkaríki.

Þrátt fyrir álag Hrútagjárdyngjuhrauns hefur rauðhóllinn staðið fyrir sínu og ekki látið hið mikla hraunálag yfir sig ganga. Sambærilega gjallhóla má sjá í Stóra-Rauðamel og Litla-Rauðamel skammt norðar. #Rauðamelarnir# í Hraununum eru skýr vísbending um fyrrum jarðsögu og mótun vestanverðs Reykjanesskagans.

Nú hefur verið komið fyrir minnismerki um listaverkið í Smalaskálakeri, þ.e. járngrind, sem sína á stærð þess fyrrum.