Það er búið að vera gaman að fylgjast með öllum þeim sem hafa tekið þátt í Ratleik Hafnarfjarðar í sumar. Fólk hefur lagt mikið á sig til að finna merkin.

Ánægjulegt er að stærsti hópurinn sem skilar hefur fundið öll merkin og það er afrek!

Nú er komið að því að gera upp leikinn, veita verðlaun og draga út fjölmörg útdráttarverðlaun.

Allir sem hafa skilað inn verða í útdrætti um Þrautakóng, Göngugarp og Léttfeta ársins og allir sem hafa skilað OG mæta á uppskeruhátíðina geta átt von á útdráttarvinningi.

Þeir eru óvenju margir í ár og munið að það er aðeins einn vinningur á mann.

Uppskeruhátíðin á Ásvöllum

Uppskeruhátíðin verður í veislusalnum að Ásvöllum, miðvikudaginn 14. október og hefst kl. 18.30.

Endilega hakið við komu ykkar á Facebook-síðu Ratleiksins