Mjög góð þátttaka var í 30. Ratleik Hafnarfjarðar sem stóð yfir í allt sumar en yfir 3.000 ratleikskort voru sótt.
Af þeim skiluðu 253 lausnum en aðeins þrisvar hafa fleiri skilað inn lausnum.
Flestir þeirra sem skiluðu höfðu farið á alla 27 staðina sem er glæsilega gert en 51 hafði farið á minnsta kosti 18 staði og 59 höfðu farið á að minnsta kosti 9 staði. Alls má reikna með að ratleiksstaðirnir hafi verið heimsóttir a.m.k. 6 þúsund sinnum!
Þeir sem finna alla staðina eru Þrautakóngar, þeir sem finna a.m.k. 18 staði eru Göngugarpar og þeir sem finna a.m.k. 9 staði eru Léttfetar.
Þátttakendur víða að
Af þeim sem skiluðu einn lausnum eru langflestir Hafnfirðingar, 35 eru úr Reykjavík, 2 frá Seltjarnarnesi, 1 úr Vogum, 19 úr Kópavogi, 18 úr Garðabæ, 1 úr Reykjanesbæ, 2 úr Mosfellssveit, 1 frá Akranesi, 1 frá Patreksfirði, einn frá Varmahlíð auk þess sem þátttakendur voru frá Noregi og Ástralíu!
Vel mætt á uppskeruhátíð
Uppskeruhátíðin var haldin að Ásvöllum í kvöld og mættu tæplega 200 manns. Þar var farið yfir leikinn og þátttökuna og sýndir myndir, m.a. frá þátttakendum.
Veitt voru þrenn verðlaun í hverjum flokki.
Þrautakóngur
- Steinarr Steinarsson, Klettahrauni 21, fékk Scarpa Ribelle gönguskó frá Fjallakofanum, að verðmæti 59.995 kr.
- María Kristbjörg Ásmundsdóttir, Þúfubarði 15, fékk 3ja rétta máltíð fyrir tvo frá Von mathús, að andvirði 23.980 kr.
- Herdís Hannesdóttir, Hólmgarði 20, Reykjavík, fékk 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar, að verðmæti 20.500 kr.
Göngugarpur
- Gunnhildur Ásta Traustadóttir, Furuási 4, Garðabæ, fékk Scarpa Mojito Hike gönguskó frá Fjallakofanum, að verðmæti 44.995 kr.
- Lilja Guðrún Guðmundsson, Breiðvangi 29, fékk 4 vikna kort í TRX/Rope Yoga hjá Elín.is, að verðmæti 29.000 kr.
- Sigurður Óli Guðmundsson, Hringbraut 57, fékk 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar, að verðmæti 20.500 kr.
Léttfeti
- Elísabet Anna Jóhannsdóttir, Stuðlabergi 58, fékk Scarpa Mistral gönguskó frá Fjallakofanum, að verðmæti 38.995 kr.
- Guðrún Jóhannesdóttir, Stigahlíð 69, Reykjavík, fékk 6 mánaða kort í Sundlaugar Hafnarfjarðar, að verðmæti 20.500 kr.
- Stefán Helgason, Vesturvangi 28, fékk gjafabréf frá Gróðrarstöðinni Þöll, að verðmæti 20.000 kr.
65 útdráttarvinningar og glaðningur fyrir börnin
19 fyrirtæki gáfu samtals 65 útdráttarvinninga af miklum rausnarskap og greinilegt að Ratleikurinn nýtur mikillar virðingar í samfélaginu.
Fyrirtækin sem gáfu vinninga voru: Altis, Ban Kúnn, Bæjarbakarí, Ferrozink, Fjallakofinn, Fjarðarkaup, Fjörukráin, Gina Tricot, Gullfiskur, Hafnarborg, Ísgerð Hafnarfjarðar, Kapphal, Krydd, Músik og sport, Pipar og salt, Rif, Sundlaugar Hafnarfjarðar, Sydhavn og Unbroken. Þá gaf Hafnarfjarðar 26 vinninga til barna sem voru meðal þátttakenda.
Er þessum fyrirtækjum og þeim sem gáfu aðalvinninga færðar bestu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.











Leave A Comment