24. Brunntorfufjárskjól
Í Hrútadyngjuhrauni eru allnokkur fjárskjól. Eitt þeirra er í jarðfalli á annars sléttu helluhrauninu sunnan við Brundtorfur (Brunatorfur/Brunntorfur). Í því er krosshleðsla, tveir hlaðnir gangar í Y frekar en í X. Þeir skiptust niður í sitthvort hellisopið. Fyrir innan eru rúmgóðir fjárhellar. Hleðslur eru inni í þeim nyrðri.
Skjólið sést vel með þrjár vörður á hraunhólum til austurs. Ofan þess er lítil varða, en hún sést ekki fyrr en ca. tíu metrar er að skjólinu. Líklegt er að skjólið hafi verið ætlað svipað hlutverk og fjárborgirnar fyrrum, þ.e. fyrir fé í útigangi sem það gæti leitað til í vondum veðrum.
Skammt sunnan við hellana liggur Stórhöfðastígur upp hraunið. Hann er varðaður frá Krýsuvíkurveginum áleiðis upp að Fjallinu eina. Þarna ofar, skammt sunnan og vestan við skógræktina í Brunnatorfum eru nokkrir grónir hraunhólar. Vörður eru hraunhólunum skammt frá en til vesturs er komið. Þær eru ágætir vegvísar að fjárskjólinu, en ofan þess, þegar nær er komið, er lítil varða.
25. Hrútagjárdyngjuhraun / Markavarða
Hrútagjárdyngja er um 4.500 ára hraundyngja sem þekur um 80-100 km² lands. Alls rúmir 3 rúmkílómetrar af hrauni. Dyngjan er með stórum toppgíg og skorin djúpum gjám sem kunna að vera merki um ris vegna kvikuinnskota. Hrútagjárdyngja er einn af stærstu hraunskjöldum á Reykjanesi. Í hrauninu er hægt að finna allmarga hraunhella, þ.á.m Steinbogahelli, Maístjörnuna og Híðið.
Í daglegu tali gengur stærsti hluti hraunsins undir nafninu Almenningur. Ljóst er, þegar gengið er um Dyngjuna og umhverfis hana, að hér hefur ekki verið um eina goshrinu að ræða heldur a.m.k. tvær eða fleiri. Nýjustu ummerkin sjást hvað best suðaustast í Hrútagjárdyngjunni. Þar er gígur og hrauntröð. Verksummerki eftir miðkaflann sjást hins vegar gleggst vestan við mikla hrauntjörn sunnanlega á dyngjusvæðinu og í hrauntröð út frá henni til norðurs. Þar hefur glóandi hraunkvikan leitað út úr gamla dyngjusvæðinu nyrst í henni og myndað ábreiðu næst dyngjunni.
Í skrá Gísla Sigurðssonar fyrir Þorbjarnarstaði í Hraunum segir: „Úr Hafurbjarnarholtsvörðu lá landamerkjalínan um Nyrztahöfða og um Norðurhöfðaslakka, á Mjóhöfða og um Miðhöfðaslakka, þaðan í Fremsthöfða á móti Straumslandi í Þrívörður“. Gísli Sigurðsson segir, að þær hafi verið nefndar Lýritti. Ljóst er að markalínan lá austur og ofan við Brundtorfur og kom þar á Stórhöfðastíg, sem lá svo áfram vestur að Fjallinu eina suðvestan Fremstahöfða.
Hvað sem öllum örnefnum í þessu annars kennilauslega hábungusvæði Hrútargjárdyngjuhrauns er Markavarðan er undirstrikar landamerki Þorbjarnarstaða og Straums efst á norðanverðri hraunbungunni. Varðan sú er mjög vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi í vestri.
Markavarða, á hraunbrúninnni vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi.
26. Fjallið eina / Smágígar
Fjallið eina er móbergshnjúkur (223 m.y.s.) skammt vestan við Krýsuvíkurveg, norður af Sveifluhálsi fyrir sunnan eða suðvestan Óbrinnishólabruna. Efst á kolli þess er grágrýtishraunsstapi, ágætt dæmi þess að fjallið hafi orðið til undir jökli síðasta jökulskeiðs en gosið náð upp úr ísbreiðunni og kollurinn þá myndast.
Stórhöfðastígur liggur frá Ási um Hádegisskarð og Dalinn (Ásflatir), sniðhallt yfir Bleiksteinsháls, út á Selhraunið að Stórhöfða, upp með honum að vestanverðu uns hann beygir yfir Hellnahraunið yngra og Brunann í átt að Snókalöndum. Þar fer hann yfir Krýsuvíkurveginn og síðan suður hraunið upp að Fjallgjá, fylgir misgengi að Fjallinu eina, upp með því að austanverðu að austurjaðri Hrútagjárdyngju og með upprisuvegg hennar að Undirhlíðaleið.
Kapelluhraun (syðsti hluti þess nefnt Nýibruni) er hluti af hraunum sem runnu á tímabilinu frá árið 1151 til um 1180 í Krýsuvíkureldum. Kapelluhraun er úfið apalhraun og rann úr gossprungu sem var alls um 25 km löng. Sunnan á skaganum rann þá einnig Ögmundarhraun í sjó fram. Kapelluhraun rann aðallega frá gígum við Vatnsskarð sem nú heyra sögunni til vegna gjallvinnslu. Í sama gosi rann hraun frá röð minni gíga sem liggur meðfram Undirhlíðum og norður um Gvendarselshæð, auk annarra smærri nálægra jaðarsettra hrauna líkt og sjá má austan og norðan við Fjallið eina. Dæmi um eina slíka staka „smáhraunslettu“ má sjá héðan hér umleikis.
Fjallið eina
Leita ég afdreps um sléttunnar slóð.
Slétturnar engu leyna.
Ég þarf að fela mig fyrir þjóð,
finna mig sjálfan og yrkja ljóð,
minnast við mold og steina.
Þess vegna kýs ég að flýja á þinn fund
Fjallið mitt góða eina,
láta þig geyma mig, stytta mér stund
stirðnuðu vængjunum lyfta’ yfir grund,
gróðurreit mannlegra meina.
Grétar Ó. Fells
27. Geldingahraun /Selhraun
Hraunafurð Geldingahrauns, sem er að mestu eldra hraun undir Afstapahrauni, rann sem mjór taumur alla leið niður að ofanverðum Þorbjarnarstöðum í Hraunum. Geldingahraunið er augljóst vestan Kapelluhrauns, en er grafinn að hluta undir yngri hraunum (Kapelluhrauns frá 1151) utan smáskækils sem stendur upp úr og nefnist nú Selhraun. Hluta Selhraunsins má enn sjá í eyðulegi hraunsins ofan Leynis austan Kapelluhrauns. Líkt og fyrr segir voru ýmis hraun í gegnum tíðina nefnd „Selhraun“, en nafngriftin var fremur dregin af seinni tíma nýtingunni en fyrri tíma tilurðinni.
Gerðisstígurinn liggur upp um Selhraun frá Gerði ofan Straumsvíkur að Neðri-hellum, Vorréttinni, að Efri-hellum og upp í fjárskjólið (Kólbeinshæðarfjárskjól) í Kolbeinshæðum.
Merkið er við mosavaxinn hraunkant.






