Hrútagjárdyngja er um 4.500 ára hraundyngja sem þekur um 80-100 km² lands. Alls rúmir 3 rúmkílómetrar af hrauni. Dyngjan er með stórum toppgíg og skorin djúpum gjám sem kunna að vera merki um ris vegna kvikuinnskota. Hrútagjárdyngja er einn af stærstu hraunskjöldum á Reykjanesi. Í hrauninu er hægt að finna allmarga hraunhella, þ.á.m Steinbogahelli, Maístjörnuna og Híðið.

Í daglegu tali gengur stærsti hluti hraunsins undir nafninu Almenningur. Ljóst er, þegar gengið er um Dyngjuna og umhverfis hana, að hér hefur ekki verið um eina goshrinu að ræða heldur a.m.k. tvær eða fleiri. Nýjustu ummerkin sjást hvað best suðaustast í Hrútagjárdyngjunni. Þar er gígur og hrauntröð. Verksummerki eftir miðkaflann sjást hins vegar gleggst vestan við mikla hrauntjörn sunnanlega á dyngjusvæðinu og í hrauntröð út frá henni til norðurs. Þar hefur glóandi hraunkvikan leitað út úr gamla dyngjusvæðinu nyrst í henni og myndað ábreiðu næst dyngjunni.

Í skrá Gísla Sigurðssonar fyrir Þorbjarnarstaði í Hraunum segir: „Úr Hafurbjarnarholtsvörðu lá landamerkjalínan um Nyrztahöfða og um Norðurhöfðaslakka, á Mjóhöfða og um Miðhöfðaslakka, þaðan í Fremsthöfða á móti Straumslandi í Þrívörður“. Gísli Sigurðsson segir, að þær hafi verið nefndar Lýritti. Ljóst er að markalínan lá austur og ofan við Brundtorfur og kom þar á Stórhöfðastíg, sem lá svo áfram vestur að Fjallinu eina suðvestan Fremstahöfða.

Hvað sem öllum örnefnum í þessu annars kennilauslega hábungusvæði Hrútargjárdyngjuhrauns er Markavarðan er undirstrikar landamerki Þorbjarnarstaða og Straums efst á norðanverðri hraunbungunni. Varðan sú er mjög vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi í vestri.

Markavarða, á hraunbrúninnni vel sýnileg frá Krýsuvíkurvegi.