Í Hrútadynngjuhrauni eru nokkur sel, s.s. Straumssel, Gjásel, Fornasel, Óttarsstaðasel, Lónakotssel og Hvassahraunssel.

Straumsselið er eitt hið merkilegasta á Reykjanesskaganum. Seltætturnar eru í Straumselstúni. Þarna stóð bær fram á síðustu öld, sem Guðmundur Tjörvi lét reisa, þ.á.m. timburhús. Bærinn brann síðar. Áður var faðir hans, Guðmundur (sonur Krýsuvíkur-Gvendar) um tíma skógarvörður í Almenningum og hélt þá til í selinu. Megintóftirnar í Straumssel eru af bæ Guðmundar. Selshúsin sjálf eru skammt austan hans.

Seltúnsgarðar liggja um nokkurn hluta túnsins. Fjárhús eru hér innangarðs sem og Selsgarðurinn og matjurtargarður. Vatnsstæði er í skúta norðan við þær, Selsbrunnurinn. Hlaðin hestarétt er vestan við Selstúnið.

Í Straumsseli var búið stundum á 19. öld. Síðast á árunum 1890-1895. Bæjarhúsin eyddust af bruna og hefur ekki verið búið þar síðan. „Í suðri sést í Hafurbjarnaholt, kennt við Björn Gnúps-Bárðarson, Hafur-Björn, sem samninginn gerði við bergbúann forðum. Gerðu þeir helmingaskipti í fjáreign. Segir sagan að þá hafi komið hafur og hrútur í féð og var þá sem tvö höfuð væru á hverri skepnu. Gerðist Björn þá fjárríkasti bóndi á Suðurnesjum“.

Seltúngarðar liggja um nokkurn hluta túnsins. Bæjarhúsin eru innangarðs. Innan Selsgarðsins var matjurtagarður.

Ofan og austan við Straumsselið er Straumsselshæð. Sunnan í henni er Straumsselshæðarskjólið.

Straumsstígurinn kemur í selið ofan við hestaréttina. Líklega hefur hún verið notuð af hestafólki, t.d. þeim sem þurftu að hitta Guðmund skógarvörð í bústað hans í Straumsseli á meðan hrístakan stóð yfir. Einnig hefur heimilisfólk í selinu notað hestana t.a.m. til hrísflutninga.