Ratleikur Hafnarfjarðar 2020 lauk 21. september sl.

Í ár var uppskeruhátíðin með óhefðbundnu sniði, send út á Facebook sl. fimmtudag. Þar var leikurinn kynntur með myndum og hann gerður upp að venju.

Dregið var úr innsendum lausnum í hverjum flokki og eru veitt þrenn verðlaun í hverjum þeirra. Þar að auki var dregið um 14 glæsileg útdráttarverðlaun sem gefin voru af fyrirtækjum og stofnunum.

Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar

Alls skiluðu 98 einstaklingar inn lausnum og höfðu fundið öll ratleiksmerkin 27. Tveir þessara gerðu sér lítið fyrir að kláruðu leikinn á einum degi og mældist gönguferð þeirra um 62 km.

Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar 2020 er Guðmundur Gunnarsson, Hringbraut 2B.
Fékk hann að launum glæsilegt Vatnajökul Alpha vesti frá 66° Norður.

  • 2. sæti: Þorbjörg Guðbrandsdóttir, Háabergi 35.
    – fékk hún að launum Bose Home 500 Wifi snjallhátalara frá Origo.
  • 3. sæti: Einar Ólafsson, Lyngbergi 25
    – fékk hann að launum 6 mánaða sundkort frá Hafnarfjarðarbæ

Göngugarpur Ratleiks Hafnarfjarðar 2020 er Elísa Björg Ágústsdóttir, Sævangi 47.
Fékk hún að launum glæsilegt Vatnajökul Alpha vesti frá 66° Norður.

Eísa Björg Ágústsdóttir er Göngugarpur Ratleiks Hafnarfjarðar 2020 og bróðir hennar, Brynjar Óli, fékk íþróttatösku í útdráttarverðlaun.
  • 2. sæti: Aðalheiður Helgadóttir, Hvammabraut 4.
    – fékk hún að launum 6 mánaða sundkort frá Hafnarfjarðarbæ
  • 3. sæti: Jónína Ágústsdóttir, Klukkubolti 2, Álftanesi.
    – fékk hún að launum 3ja rétta máltíð frá Von mathúsi.-

Léttfeti Ratleiks Hafnarfjarðar 2020 er Birkir Ingi Jónsson, Vesturvangi 42.
Fékk hann að launum glæsilegt Vatnajökul Alpha vesti frá 66° Norður.

Birkir Ingi Jónsson er Léttfeti Ratleiks Hafnarfjarðar 2020
  • 2. sæti: Aldís Sigurðardóttir, Kirkjuvöllum 5
    – fékk hún að launum 15 þús. kr. gjafabréf frá Altís
  • 3. sæti: Rósa Bóel Halldórsdóttir, Berjavöllum 2
    – fékk hún að launum 6 mánaða sundkort frá Hafnarfjarðarbæ

14 fengu útdráttarverðlaun

Þar sem uppskeruhátíðin var rafræn í ár áttu allir sem skiluðu inn lausnum möguleika á að verða dregnir út og fá vinning en venjulega hafa aðeins þeir sem mæta á uppskeruhátíðina átt slíka möguleika. Eftirtaldir fengu vinning:

  • Auður Þórhallsdóttir, Reykjavíkurvegi 52a, fékk 5 þús. kr. gjafabréf frá Rif veitingastað
  • Birkir Bóas Davíðsson, Berjavöllum 2, fékk tré frá Gróðrarstöðinni Þöll
  • Birna Jóhanna Ólafsdóttir, Brekkuási 11, fékk gjafabréf frá Bank Kúnn, máltíð fyrir tvo
  • Brynjar Óli Ágústsson, Sævangi 47, fékk Nike íþróttataska frá Músik og sport
  • Elín Ósk Sigurðardóttir, Túnhvammi 15, fékk 10 þús. kr. gjafabréf frá Tilverunni
  • Hannes Jón Marteinsson, Lóuhrauni 5, fékk 3ja rétta máltíð fyrir 2 í Von mathús
  • Hlini Friðjónsson, Hvammabraut 4, fékk 6 mánaða sundkort frá Hafnarfjarðarbæ
  • Jón Þór Sturluson, Vesturhlíð 9, Rvk, fékk Gjafabréf frá Bank Kúnn, máltíð fyrir tvo
  • Margrét Lene Kristensen, Lækjarbergi 25, fékk Nike íþróttataska frá Músik og sport
  • Páll Línberg Sigurðsson, Norðurbakka 7c, fékk Hamborgararfjölskyldutilboð frá Burger-inn
  • Silja Katrín Hallgrímsdóttir, Kvistavöllum 25, fékk 8 Gb minniskubbur frá Fjarðarfréttum
  • Sveinn Elliði Björnsson, Stekkjarhvammi 20, fékk Hótelgisting fyrir tvo á Hótel Víking
  • Viggó Örn Guðbjartsson, Suðurhvammi 7, fékk Hamborgararfjölskyldutilboð frá Burger-inn
  • Þórður Pálsson, Háabergi 35, fékk 6 mánaða sundkort frá Hafnarfjarðarbæ

Góð þátttaka

Mjög góð þátttaka var í Ratleiknum í ár og víða mátti sjá fólk í upplandinu sem var að taka þátt í leiknum. Ekki er hægt að segja til um það hversu margir taka þátt í leiknum hverju sinni en þeir sem skiluðu inn lausnum í von um að hreppa vinning voru 169 í ár sem er yfir meðaltali síðustu 10 ára. Hins vegar hafa aðeins einu sinni jafnmargir skilað inn öllum lausnunum 27 og í ár eða 98 talsins. Er það vel yfir helmingur þátttakenda sem það gera.

Aðeins þeir sem a.m.k. hafa fundið 9 spjöld geta skilað inn svo búast má við að þátttakendur séu töluvert fleiri en þeir sem skila. Á fimmta hundrað manns eru í Facebook hópi þátttakenda í Ratleik Hafnarfjarðar en hópurinn var stofnaður í fyrra.

 

Sná nánar á fréttavef Fjarðarfrétta:

 

Hægt er að sjá uppskeruhátíðina hér: